Guð má vita hvað!
Í tilefni þessa að ég er að byrja að blogga hérna ákvað ég að setja upp litla smásögu. Þessi smásaga var samin fyrir um það bil 10-45 árum og uppruni hennar er ókunnur. En eitt er víst. Ég er höfundurinn og penninn var gamla apple tölvan sem (blessuð sé minning hennar) virkar því miður ennþá. Móðir mín sem var fyrir nokkrum hundruðum stundum síðan að nota sína einstöku hæfileika í herkænskulegum þrifnaði, tókst að grafa upp þessa sögu. Sagan var síðan send til mín í pósti og restin er… saga. Hérna kemur hún:
Einu sinni voru tveir jólasveinar. Annar þeirra var kallaður Jóli og hinn gekk undir gælunafninu Mafíósi. Jóli var því miður taugatrekktur, gráhærður fyrir aldur fram og karlkvikindi sem gekk með rauða smokkahúfu sem huldi skallann. Mafíósi var svalur náungi sem gekk með Ray Ban sólgleraugu, reykti Havana vindla og sniffað kók. Dag einn blossaði upp heiftar rifrildi. Rifrildi var þeim daglegt brauð enn í þetta skiptið var það öðru vísi. Mafíósi var í heiftarlegum niðurtúr eftir óhóflega neyslu þennan dag. Jóla varð nóg boðið og tók þá ákvörðun að losa sig við hann og skaut honum til Tunglsins.
10 árum seinna…
Mafíósi leiddist því miður vistin á tunglinu en til þess að stytta sér stundir, nýtti hann þennan dýrmæta tíma til að njósna um Jóla. Um leið og Mafíósi hvarf af yfirborði jarðar setti Jóli af stað leynilegt ráðabrugg til þess að verða dáðasti dýrlingur jarðarinnar. Jóli var byrjaður að losa sig við gamlar matarleifar og annað ómerkilegt rusl með því að… pakka því inn í skrautlegar umbúðir og gefa það. Þessa hræðilegu uppfinningu kallaði hann Jólagjafir! Þessu tók fólk um allan heim fagnandi, sérstaklega fólk á Íslandi. Því það vita allir að engin önnur þjóð heldur hátíð ljós og friðar jafn hátíðlega og Íslendingar. Öfundsýkin nagaði Mafíósa, hann tók þá ákvörðun að hann yrði að hefna sín. Hvað sem það gæti kostað aðra. Hann skyldi eyðileggja jólin hans Jóla!
20 árum seinna…
Því miður skrifaði þessi dáði höfundur ekki orð meir, því hann dó í lestarslysi í hjarta Reykjarvíkurborgar, árið 2067.
P.s. Þessi grein er pínulítið copy-paste af gamla blogginu mínu.